top of page
Starfsemi

Tilgangur félagsins er að veita sérhæfða þjónustu fyrir tölvukerfi á rannsóknastofum og samþættingu þeirra við viðeigandi umhverfi. Um er að ræða bæði vinnslukerfi fyrir starfsemi rannsóknastofunnar sem og viðmót fyrir rafrænar beiðnir og svör. Benhur er dreifingar- , uppsetningar- og þjónustuaðili fyrir hugbúnaðarkerfi frá fyrirtækinu Mips í Gent í Belgíu sem er í eigu Clinisys group. Mips hefur verið með rannsóknastofukerfi í rekstri á Landspítala frá 1994 og því er löng reynsla af þessu fyrirtæki hér á landi.

Sérþekking

LIS hugbúnaður

Uppsetningar

Innleiðingar

Rekstur

Samþætting

Þjónusta

Tækjatengingar

Fyrirtækið

Benhur ehf var stofnað 2004 af Skúla B. Barker verkfræðingi, sem er með áratuga reynslu af uppsetningu og þjónustu á tölvukerfum fyrir rannsóknastofur. Skúli starfaði fyrir LSH frá 1990 til 1998 við rannsóknastofukerfin og síðan frá 2000 til 2004 og þá m.a. sem deildarstjóri samþættingar upplýsingakerfa

 

 

 

© 2015 Benhur ehf               postur(at)benhur.is          GSM   892-7600

bottom of page