top of page

Kostir við GLIMS og Cyberlab

  • Mikil og góð reynsla er hér á landi af Glims og Cyberlab sem hefur verið keyrandi á þremur rannsóknstofum á LSH í u.þ.b. áratug.

 

  • Glims er notað á stærstu örverurannsóknarstofu á Íslandi, þ.e. Rannsóknastofu í Sýklafræði á LSH.
     

  • GLIMS er þegar aðlagað að ÍST 130:2004 staðlinum. Þessi staðall er gefinn út af Staðlaráði Íslands um “Upplýsingatækni – íslenskar kröfur”.
     

  • GLIMS er mjög fullkomið og nútímanlegt kerfi og er sérstaklega aðlaganlegt sem skiptir mjög miklu máli varðandi innleiðingu.  Aðlögunarhæfni kerfisins stuðlar að hraðari, ódýrari og öruggari innleiðingu.
     

  • Þar sem þegar er búið að innleiða GLIMS á þrjár rannsóknastofur innanlands liggur fyrir bæði töluverð reynsla af kerfinu og þekking sem mun spara mikla innleiðingarvinnu.
     

  • Ýmis vandamál sem koma upp við innleiðingu á kerfi í nýu umhverfi þ.e. á Íslandi hafa þegar verið leyst í GLIMS. Svo er ekki farið með önnur kerfi sem ekki hafa verið sett upp á Íslandi áður. Þetta sparar innleiðingarvinnu og tryggir að ekki eru ófyrirséð vandamál sem gætu stoppað eða tafið verkefnið og þar með haft ófyrirséðan kostnað í för með sér.
     

  • GLIMS hefur þjónustuaðila innanlands sem er Benhur ehf. Benhur ehf býr yfir áratuga langri reynsla af uppsetningu, innleiðingu og þjónustu á rannsóknastofukerfum. Þetta skiptir miklu máli til að tryggja að innleiðing gangi vel.
     

  • GLIMS og Cyberlab er framleitt af fyrirtækinu MIPS í Belgíu em hefur sérhæft sig á þessu sviði í um 30 ár þ.e. frá1985.   Mips er hluti af Clinisys Group sem þjónar yfir 2000 rannsóknastofum í Evrópu í 34 löndum.   Mips hefur verið með kerfi keyrandi á Íslandi frá 1994 og hefur það sýnt sig að Mips er traust og áreiðanlegt fyrirtæki.
     

  • Mips hefur þróað code generator sem kallast MATE sem framleiðir stærsta partinn af kóða Glims kerfisins þegar um breytingar og viðbætur er að ræða. Þetta leysir vandamál sem tengjast viðhaldi á mjög stórum kerfum og hefur gert Glims sérstaklega stöðugt og eftirsóknarvert kerfi. Þetta þýðir að kerfið mun halda áfram að vera stöðugt, þó svo að kerfið stækki með aukinni virkni. Þetta er augljós kostur umfram aðra keppinauta, þar sem stöðugleiki rannsóknastofukerfa skiptir miklu máli. Þess má geta að Clinisys keypti GLIMS einmitt vegna þessara þátta.
     

  • GLIMS var valið af kröfuharðasta kúnna á íslandi þ.e. LSH eftir að hafa eytt bæði miklum tíma, fjármagni og sérhæfðum mannskap í að skoða möguleg kerfi.

 

© 2015 Benhur ehf               postur(at)benhur.is          GSM   892-7600

bottom of page